Málsnúmer 2412019
Bæjarráð Grindavíkur - 1689. fundur - 9.9.2025 00:00:00
Vísað er til bókunar vegna máls 2. Sprungur og byggðaþróun í Grindavík.
Vinna sérfræðingateymis við gerð ítarlegs hættumats/korts hefur haldið áfram frá því í vor. Felst vinnan í jarðfræðilegum greiningum og mati á hættusvæðum innanbæjar og náttúruvá. Nú er verkefnið á lokametrum og mun Jón Haukur Steingrímsson hjá Eflu kynna helstu niðurstöður í "Könnun á sprungukerfum með tilliti til byggðaþróunar í Grindavík." Vinnugögn sérfræðingateymis eru kynnt með þeim fyrirvara að verkefnið er enn í vinnslu og að niðurstöður varðandi einstök hús eða lóðir kunni enn að breytast.