Málsnúmer 2412018
Bæjarráð Grindavíkur - 1676. fundur - undefined
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og skipulagsfulltrúi (Teams).
Á fundi bæjarstjórnar nr. 581 var óskað eftir afstöðu bæjarstjórnar á niðurrifum nokkurra eigna. Samþykkt var að gefa mætti leyfi fyrir áformum niðurrifa fyrir nefndar eignir nema Salthúsið, fyrst þyrfti að leggja fram grófa kostnaðaráætlun fyrir varðveislu hússins. Lögð er fram gróf kostnaðaráætlun gerð af VSS.
Ljóst er að um mikla óvissu er að ræða um framtíðarnotkun hússins. Fara þarf í gegnum það ferli og skoða vel hvert notagildi hússins verður, fái það að standa áfram í óbreyttu ástandi. Það er gríðarlega áhrifamikið að ganga um húsið og upplifa kraft náttúruaflanna. Notkun hússins sem sýning þar sem fólk fengi að labba inn og skoða yrði án efa mikið aðdráttarafl fyrir bæinn auk þess að það hefði mikið menningarlegt gildi fyrir bæinn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Á fundi bæjarstjórnar nr. 581 var óskað eftir afstöðu stjórnar á niðurrifum nokkurra eigna. Samþykkt var að gefa mætti leyfi fyrir áformum niðurrifa fyrir nefndar eignir nema Salthúsið, fyrst þyrfti að leggja fram grófa kostnaðaráætlun fyrir varðveislu hússins. Lögð er fram gróf kostnaðaráætlun gerð af VSS.