Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2412016

Bæjarráð Grindavíkur - 1681. fundur - 5.6.2025 00:00:00


Lagt fram yfirlit yfir álögð fasteignagjöld á árinu 2025.

Álögð fasteignagjöld eru í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar á fundi 584 en þar var eftirfarandi tillaga samþykkt:

Alþingi samþykkti þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ) sem tóku til heimildar vegna ársins 2024. Þann 10. apríl 2025 samþykkti Alþingi lög um framlengingu á þessum heimildum fyrir árið 2025.

Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2025 á eftirfarandi eignir:

Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Aðrar eignir en þarna falla undir munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2025.

Auk þess er lagt til að ekki verði álagning eftirfarandi gjalda: Lóðarleiga, vatnsgjald, fráveitugjald og sorpgjöld. Aukavatnsskattur verður álagður skv. álestri vatnsmæla.

Jafnframt er lagt til að gjalddagaskipting fasteignagjalda verði breytt þannig að gjalddagar fasteignagjalda fyrir árið 2025 verði 8 í stað 10 og sá fyrsti verði 1. maí 2025 og sá síðasti 1. desember 2025.

Tillagan er sett fram í ljósi þess að enn eru takmarkanir á aðgengi og nýtingu fasteigna innan þéttbýlis í Grindavík en slíkt á ekki við um önnur svæði innan lögsögu Grindavíkurbæjar.

Álögð gjöld á árinu 2025 eru 299,1 milljón króna.


Lagt fram yfirlit yfir reiknuð fasteignagjöld ársins 2025 miðað við forsendur sem samþykktar voru í bæjarstjórn í síðustu viku.