Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2411031

Innviðanefnd - 2. fundur - undefined


Fyrir hönd Þorbjarnar hf. óskar Jón Emil Halldórsson eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi miðbæjar og hafnarsvæðis. Óskað er eftir að lóð Hafnargötu 20-22 verði skipt i tvennt svo Hafnargata 22 verði á sér lóð. Lóðin er í eigu Grindavíkurbæjar og á Þorbjörn hf. öll mannvirki á lóðinni. Einnig er sótt um heimild fyrir inn/útkeyrslu inn á lóðirnar frá Seljabót. Möguleg staðsetning er sýnd á mæliblaði.

Innviðanefnd samþykkir breytinguna og metur hana sem óverulega, þá er fallið frá grenndarkynningu 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga enda varði hún ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Heimild fyrir innkeyrslu inn á lóðirnar frá Seljabót er nú þegar til staðar sbr. gildandi deiliskipulagi Miðbæjar og hafnarsvæðis frá 2015. Hafa skal samráð við forstöðumann áhaldahúss við framkvæmd verkefnisins út frá umferðaröryggissjónarmiðum.
Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. 2.gr. í viðauka 1.1. í bæjarmálasamþykkt.

Bent er á að skila þurfi inn deiliskipulagsuppdrætti af lóðarbreytingu. Þegar hún hefur tekið gildi þá þarf að auki að senda inn umsókn um breytingu á lóð enda sé hún þá orðin leyfileg skv. deiliskipulagi.

Innviðanefnd vekur athygli umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar


Fyrir hönd Þorbjarnar hf. óskar Jón Emil Halldórsson eftir að búin verði til ný lóð út úr lóðinni Hafnargata 20-22, L128689 (sjá mæliblað í viðhengi). Verður þá til nýtt landnúmer og fasteignanúmer fyrir mannvirkið sem þar stendur. Í náinni framtíð munu þessar fasteignir verða í eigu tveggja aðskildra lögaðila. Einnig er sótt um heimild fyrir inn/útkeyrslu inn á lóðirnar frá Seljabót. Möguleg staðsetning er sýnd á mæliblaði.