Málsnúmer 2410033
Bæjarstjórn Grindavíkur - 578. fundur - undefined
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund, Gunnar Már, bæjarstjóri, Sævar, Guðjón og Unnar.
Bæjarstjórn telur mikilvægt að styðja eins og kostur er við atvinnustarfsemi í Grindavík. Bæjarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti en vekur athygli á að það þarf leyfi annarra landeigenda auk leyfis til að fara inn á vinnusvæði við varnargarða.
Ferðaþjónustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri ehf hefur rekið ferðaþjónustu í Grindavík síðan 2007 með fjórhjóla-, buggybíla- og reiðhjólaferðir í kring um Grindavík. Þau óska eftir leyfi til að aka um nú þegar markaða slóða og meðfram varnargörðum austast í bænum, sjá meðf. teikningu. Fyrri leiðir þeirra hafa lent undir hrauni eða þeim verið lokað en án styttri ferða sem hafa verið 70% af veltunni neyðast þau til að hætta starfsemi.