Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2409018

Bæjarstjórn Grindavíkur - 581. fundur - undefined


Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Hallfríður, Guðjón, Gunnar Már, Birgitta Rán og Sævar.

Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2025-2028 er lögð fram til síðari umræðu.

Áætlunin ber þess merki að starfsemi Grindavíkurbæjar er í algjöru lágmarki út áætlunartímabilið. Áætlun um tekjur byggir á mjög óljósum forsendum en ljóst er að mikið tekjufall verður hjá Grindavíkurbæ. Gert er ráð fyrir samdrætti í launum og öðrum rekstarkostnaði en þrátt fyrir það verður verulegur rekstarhalli öll árin.

Áætluð rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta:

2025 2026 2027 2028
-1.363.977 -552.822 -523.574 -545.127

Verulega gengur á handbært fé Grindvíkurbæjar, bæði handbært fé til rekstar og tjónabætur frá NTÍ.
Handbært fé í upphafi árs 2025 er 3.318.931 þús. kr. að meðtöldum bótasjóði. Í árslok 2028 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 51.086 þús. kr.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.


Síðari umræða fjárhagsáætlunar.