Málsnúmer 2409005
Bæjarráð Grindavíkur - 1675. fundur - undefined
Bæjarráð Grindavíkur telur það ekki þjóna hagsmunum Grindavíkur að svo stöddu að sameina almannavarnanefnd Grindavíkur og almannavarnanefnd Suðurnesja utan Grindavíkur. Fyrir liggur að verkefni almannavarnanefndar Grindavíkur hafa mikið til verið falin Grindavíkurnefndinni, að minnsta kosti tímabundið, sbr. lög 40/2024.
Grindavíkurbær mun fylgjast með vinnu við gerð lagafrumvarps til nýrra heildarlaga um almannavarnir og endurmeta afstöðuna þegar betri upplýsingar liggja fyrir um efni frumvarpsins.
Málið er tekið fyrir að nýju í framhaldi af síðasta fundi bæjarráðs.