Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2406037

Bæjarstjórn Grindavíkur - 571. fundur - 6.11.2024 00:00:00


Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Helga Dís, Hjálmar og Gunnar Már.

Guðjón Bragason lögfræðingur fór yfir ákvæði auglýsingar um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja hæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins. Einnig fór hann yfir ákvæði samþykktar um mögulegar breytingar á samþykktum Grindavíkurbæjar.

Lögð eru fram tvö vinnuskjöl um framangreind atriði.

Bæjarstjórn skipar eftirtalda í nefnd um endurskoðun samþykkta bæjarins:
Hjálmar Hallgrímsson
Hallfríður Hólmgrímsdóttir
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Helga Dís Jakobsdóttir

Ef aðalmaður er forfallaður tekur næsti aðili á lista hans sæti.

Guðjón Bragason og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs verða starfsmenn nefndarinnar.


Guðjón Bragason lögfræðingur fer yfir ákvæði auglýsingar um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja hæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins. Einnig mun hann fara stuttlega yfir ákvæði samþykktar um mögulegar breytingar á samþykktum Grindavíkurbæjar. Lögð eru fram tvö vinnuskjöl um framangreind atriði. (Ath. Ekki búinn að leggja lokahönd á þau en þau eru nálægt því að vera sýningarhæf.)