Málsnúmer 2406034
Bæjarstjórn Grindavíkur - 571. fundur - 6.11.2024 00:00:00
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Grettir Haraldsson, ráðgjafi, Sindri Þrastason, ráðgjafi. Hanna Dóra Másdóttir, Guðný Sverrisdóttir og Gunnar Einarsson frá Grindavíkurnefnd. Einnig sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður áhaldahúss.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hallfríður, bæjarstjóri, Gunnar, Guðný, Guðjón, Hjálmar og Hanna Dóra.
Lagt fram minnisblað frá vinnufundi í Grindavík þann 6. júní sl. vegna aðgerðaráætlunar um innviði.
Aðgerðaráætlun fyrir framkvæmdanefnd til umræðu, vísað er til b og c liðir í 7. gr. laga um framkvæmdanefndina.
Haldinn var vinnufundur með hluta vettvangsstjórnar og aðgerðarstjórnar ásamt starfsmönnum Grindavíkurbæjar þann 6. júní. Punktar eftir þann fund lagðir fram til umræðu ásamt gögnum frá verkfræðistofunni Eflu sem lögð voru fram á vinnufundinum.