Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2406032

Bæjarstjórn Grindavíkur - 571. fundur - 6.11.2024 00:00:00


Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir í stjórn Kölku, forstöðumaður áhaldahúss, Gunnar Einarsson, Guðný Sverrisdóttir og Hanna Dóra Másdóttir.

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ragnheiður, Hallfríður, forstöðumaður áhaldahúss, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Helga Dís og Hjálmar.

Lagður fram tölvupóstur frá Kölku, dags. 28. maí sl. varðandi opnunartíma gámaplans og fjölda sorpíláta við íbúðarhúsnæði í Grindavík.

Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkur leggur til að Kalka endurskoði opnunartíma gámasvæðisins í Grindavík, tíðari losun þess og auki aðgengi að svæðinu tímabundið á meðan eftirspurn eftir þjónustunni er mikil með því að lengja opnun á laugardögum og að hafa opið á sunnudögum.

Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir því að nytjagámi verði komið fyrir í bæjarfélaginu til að lágmarka umhverfisáhrif og almenna sóun. Þá er óskað eftir viðræðum við Kölku um almenna sorphirðu í Grindavíkurbæ.


Mál lagt fram til að fá umræðu í bæjarstjórn varðandi sorphirðu og gámaplan Kölku á tímum náttúruhamfara.