Málsnúmer 2406016
Bæjarstjórn Grindavíkur - 571. fundur - 6.11.2024 00:00:00
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, bæjarstjóri, Hjálmar, Helga Dís, Gunnar Már, Birgitta Hrund og Birgitta Rán.
Lögð fram áskorun fyrirtækjaeigenda í Grindavík til bæjarstjórnar Grindavíkur varðandi lokunarpósta.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkur bindur miklar vonir við að fljótlega skapist aðstæður til að leggja niður lokunarpóstana. Sú framkvæmd og mat á þörf fyrir lokunarpósta liggur í höndum lögreglustjórans á Suðurnesjum og framkvæmdanefndarinnar eins og lög kveða á um.
Bæjarstjórn hvetur framangreinda aðila til að skoða áskorunina með jákvæðum augum.
Borist hefur áskorun til bæjarstjórnar Grindavíkur frá nokkrum fyrirtækjaeigendum í Grindavík um að lokunarpóstar verði teknir af og bærinn opnaður almenningi.