Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2406008

Bæjarstjórn Grindavíkur - 570. fundur - 6.3.2024 00:00:00


Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Gunnar Einarsson, frá Grindavíkurnefndinni og Guðjón Bragason, ráðgjafi.

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Gunnar Einarsson, Hallfríður og Guðjón.

Grindavíkurnefndin átti fundi með Almannavörnum og HS veitum sunnudaginn 2. júní varðandi rafmagnsleysi í Grindavík. Tillaga HS veitna um bráðabirgða/neyðartenging var rædd, slík tenging getur staðið undir þeirri raforkunotkun sem hefur verið í Grindavík undanfarið. Enn á eftir að taka ákvarðanir um hvar og hvernig er hægt að koma á varanlegri og vonandi endanlegri tengingu milli flutningskerfis Landsnets (Svarstengis eða önnur leið) og Grindavíkur.
Grindavíkurnefndin telur brýnt að komið verði á rafmagn með lagningu strengs í samræmi við tillögur HS Veitna og sem fylgir með bókun þessari. Skv. því er unnt að koma á raftengingu á 6 dögum og er kostnaður áætlaður um 75 mkr.
Nefndin leggur til að framkvæmdin verði heimiluð og fjármögnuð úr ríkissjóði.

Bæjarstjórn tekur samhljóða undir framangreinda tillögu Grindavíkurnefndarinnar.