Málsnúmer 2406000
Bæjarstjórn Grindavíkur - 570. fundur - 6.3.2024 00:00:00
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Gunnar Einarsson, frá Grindavíkurnefndinni, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Guðjón Bragason, ráðgjafi.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Guðjón, Gunnar Einarsson, Hallfríður, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Lögð fram aðgerðaráætlun og drög að samningi við MNR.
Í samræmi við 7. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ óskar nefndin eftir afstöðu sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar til aðgerðaráætlunar fyrir þjónustuteymi.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við drög að samningi en felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að koma með ábendingar inn í aðgerðaáætlunina.
Í samræmi við 7. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ óskar nefndin eftir afstöðu sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar til aðgerðaráætlunar fyrir þjónustuteymi.