Málsnúmer 2404130
Skipulagsnefnd - 132. fundur - 5.8.2024 00:00:00
Sótt var um byggingarleyfi fyrir óskráðum kjallara 21,8 fm, grafinn út undir bílskúr Heiðarhrauns 23 á byggingartíma hússins '74. Hverfið er ódeiliskipulagt.
Vegna tómlætis nágranna og byggingaryfirvalda metur skipulagsnefnd það sem svo að grenndaráhrif kjallarans séu engin og ekki þurfi að grenndarkynna kjallarann sem hefur staðið frá upphafi.
Vegna framangreinds þá gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við stækkun fasteignarinnar sbr. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Fyrir hönd eiganda sækir Ingiþór Björnsson um skráningu á kjallara undir Heiðarhrauni 23, grafinn út á byggingartíma hússins '74. Um er að ræða framkvæmd án byggingarleyfis og á ódeiliskipulögðu svæði. Með fylgir reyndarteikning og skráningartafla dagsett 19.04.2024.