Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2404111

Skipulagsnefnd - 132. fundur - 5.8.2024 00:00:00


Óskað var eftir skráningu á vinnustofu/skúr sem hefur staðið á lóðinni í yfir 70 ár. Skúrinn er 21,8 fm.

Skipulagsnefnd samþykkir skráningu skúrsins í ljósi aldurs og samræmi hans við helstu einkenni hverfisins enda til staðar þegar verndaráætlun hverfisins var gerð.

Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.


Fyrir hönd eiganda sækir Ingiþór Björnsson hönnunarstjóri um skráningu á 70 ára gömlum skúr við Þórkötlustaði 3. Með fylgir reyndarteikning og skráningartafla dagsett 16.04.2024.

Óskað er eftir skráningu á vinnustofu/skúr sem hefur staðið á lóðinni frá því fyrir 1954. Skúrinn er 21,8 fm, nefndur "Hús 02 Geymsla við Vesturbæ" í verndaráætlun Þórkötlustaðahverfis. Svæðið er ódeiliskipulagt en með verndaráætlun.