Málsnúmer 2404048
Bæjarstjórn Grindavíkur - 563. fundur - 4.10.2024 00:00:00
Til máls tók: Ásrún.
Forseti leggur fram tillögu um að bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykki að kaupa listaverk til áminningar um mikilvægt framlag sjálfboðaliða til uppbyggingar samfélagsins í Grindavík í fortíð, nútíð og framtíð. Listaverkið er þakklætisvottur til þeirra Grindvíkinga sem í gegnum tíðina hafa ráðstafað tíma sínum og orku í þágu heildarinnar en um leið hvatning til að halda áfram á sömu braut. Skal verkið sett upp utandyra og á áberandi stað í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn mun vinna málið áfram í samvinnu við félagasamtök í Grindavík.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
Lögð fyrir bæjarstjórn tillaga að þakklætisvotti til þeirra Grindvíkinga sem í gegnum tíðina hafa ráðstafað tíma sínum og orku í þágu samfélagsins í Grindavík.