Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2404002

Bæjarstjórn Grindavíkur - 562. fundur - 4.4.2024 00:00:00


Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón Bragason og Ellen Calmon. Ellen, Guðjón og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fóru af fundi kl. 10:40. Launafulltrúi kom inn á fundinn kl. 10:45.

Til máls tóku: Ásrún, Ellen, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Birgitta Rán, Hallfríður, Birgitta Hrund, Helga Dís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, launafulltrúi, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már og Hjálmar.

Lagt fram minnisblað frá Ellen Calmon, dags. 4. apríl 2024, vegna húsnæðismála Grindvíkinga frá 10. nóvember 2023 til dagsins í dag.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að fundið verði hentugt húsnæði fyrir heimilisfólk sem bjó á Túngötu 15-17.


Farið yfir rýmingu íbúðakjarnans við Túngötu, núverandi aðstæður íbúanna og fleira er varðar húsnæðismál.

Nökkvi Már og Hlín mæta á fundinn.