Málsnúmer 2403186
Skipulagsnefnd - 130. fundur - undefined
HS Orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir viðhaldsborun á borteig RN-12 við Reykjanesvirkjun.
HS Orka hf. áformar viðhaldsborun á borholu RN-12 á núverandi borsvæði BG-7. Stækka þarf svæðið lítillega, um 800 m2 , til að koma fyrir nauðsynlegum borbúnaði. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru innan sveitarfélagsmarka Grindavíkurbæjar og eru í samræmi við skipulagsáætlanir og umhverfismat. Framkvæmdasvæðið er staðsett á skilgreindu iðnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi og utan við svæði sem eru hverfisvernduð vegna jarðmyndanna.
Fyrirhuguð framkvæmd er bæði í samræmi við gildandi deiliskipulag og aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032. Er því fallið frá grenndarkynningu í samræmi við 5. mgr. 13. skipulagslaga.
Samkvæmt 4.mgr.2. gr. í viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Skipulagsnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdarinnar.
HS Orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir viðhaldsborun á borteig RN-12 við Reykjavnesvirkjun.
Matsskylda framkvæmdarinnar er nú þegar til staðar en viðhaldsborun á RN-12 er hluti framkvæmda sem byggja á áliti Skipulagsstofnunar frá 23.7.2009, um stækkun Reykjanesvirkjunar og úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Reykjanesvirkjunar frá 2002.