Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2403185

Bæjarstjórn Grindavíkur - 571. fundur - 6.11.2024 00:00:00


Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.

Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.

Skipulagsnefnd tók deiliskipulagsbreytingu fyrir Norðurljósaveg 9 og 9a á fundi nr. 133 þann 3. júní sl. í kjölfar þess að grenndarkynningu var lokið. Grenndarkynning fór fram í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnir bárust frá báðum umsagnaraðilum. Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsagnir og þær breytingar sem gerðar voru og telur þær fullnægjandi.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði falið að svara þeim sem gerðu athugasemd við tillöguna og ljúka málinu skv. 2. gr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.


Mál tekið fyrir aftur að grenndarkynningu lokinni. Grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar Bláa lónins lauk 3. maí sl., hún fór fram í samræmi við 2. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnir bárust frá báðum umsagnaraðilum. Bláa lónið hefur leiðrétt bæði greinargerð og uppdrátt út frá ábendingum þeirra og þarf skipulagsnefnd að bregðast við því.

Nefndin hefur farið yfir umsagnir og þær breytingar sem gerðar voru og telur þær fullnægjandi og vísar erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim sem gerðu athugasemd við tillöguna og ljúka málinu skv. 2.gr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að bæjarstjórn gefi samþykki. Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.