Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2403098

Bæjarstjórn Grindavíkur - 562. fundur - 4.4.2024 00:00:00


Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Skarphéðinn B Steinarsson og sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs.

Til máls tóku: Ásrún, Skarphéðinn, Guðjón, Birgitta Hrund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már og bæjarstjóri.

Lögð fram drög að verkefnalista atvinnuteymis.


Lagt fram til kynningar umræðuskjal atvinnuteymis Grindavíkurbæjar dags. 29. febrúar 2024 - Aðgerðaáætlun fyrir atvinnulíf í Grindavík. Umræðuskjalið snýr einkum að aðgerðum sem atvinnuteymi taldi mikilvægar til að gera fyrirtækjum sem það kjósa mögulegt að halda úti atvinnurekstri í Grindavík.

Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjóri atvinnumála og Guðjón Bragason lögfræðilegur ráðgjafi atvinnuteymis verða með kynningu á fundinum um helstu verkefni framundan í atvinnumálum. Þeir munu m.a. greina frá samskiptum við starfshóp fjögurra ráðuneyta um atvinnumál í Grindavík, greiningarvinnu Deloitte fyrir starfshópinn, stuðningsaðgerðum fyrir atvinnulíf sem þegar eru í gildi og ábendingum forsvarsmanna minni fyrirtækja um þörf fyrir frekari aðgerðir. Jafnframt munu þeir fara yfir hugmyndir atvinnuteymis að áherslum í atvinnumálum á næstu vikum.