Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2403046

Skipulagsnefnd - 131. fundur - 4.10.2024 00:00:00


Guðbjörg Rós Guðnadóttir sækir um skráningu á óleyfisframkvæmdum við Staðarhraun 8. skv. meðfylgjandi uppdráttum frá Braga Magnússyni dagsettum 8.02.2024.

Helstu breytingar frá samþykktum teikningum er að búið er að lengja bílgeymslu og innrétta hana sem íbúðarrými. Einnig er búið að byggja yfir pall sem var milli þvottarhús og herbergis í norðurhlið hússins.

Samkvæmt kortasjá sveitarfélagsins má sjá að framkvæmdir við lengingu á bílskúr til norðurs (inn í lóð) var unnin í kringum árið 2002 og yfirbygging á palli var unnin á milli áranna 2010 til 2012.

Grenndaráhrif stækkunar yfir pall á norðurhlið hús eru engin að mati skipulagsnefndar. Vegna tómlætis nágranna og byggingaryfirvalda metur skipulagsnefnd það sem svo að ekki þurfi að grenndarkynna stækkun á bílskúr, enda hafi viðbyggingin staðið óáreitt í 22 ár.

Vegna framangreinds þá gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við stækkun fasteignarinnar. Umsókn um breytta notkun á húsnæðinu þarf að berast skipulagsnefnd sérstaklega. Erindinu er vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.


Guðbjörg Rós Guðnadóttir sækir um skráningu á óleyfisframkvæmdum við Staðarhraun 8. skv. meðfylgjandi uppdráttum frá Braga Magnússyni dagsettum 8.02.2024.

Helstu breytingar frá samþykktum teikningum er að búið er að lengja bílgeymslu og innrétta hana sem íbúðarrými, Einnig er búið að byggja yfir pall sem var milli þvottarhús og herbergis í suðurhlið hússins.