Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2403005

Bæjarstjórn Grindavíkur - 558. fundur - 3.5.2024 00:00:00


Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri og Gunnar Már.

Lögð fram beiðni fasteignafélagsins Þórkötlu, dags. 29. febrúar 2024 þar sem óskað er eftir að Grindavíkurbær falli frá forkaupsrétti sem tilgreindur er í lóðarleigusamningum Grindavíkurbæjar vegna kaupa fasteignafélagsins á íbúðarhúsnæði í Grindavík á grundvelli laga nr. 16/2024, um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt þann sem tryggður er í lóðarleigusamningum vegna kaupa fasteignafélagsins Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík á grunni umræddra laga.


Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent erindi þess efnis að Grindavíkurbær gefi út yfirlýsingu um að fallið verði frá forkaupsrétti sem tilgreindur er í lóðarleigusamningum sveitarfélagsins vegna kaupa á tilteknum eignum.