Málsnúmer 2402077
Bæjarstjórn Grindavíkur - 558. fundur - 3.5.2024 00:00:00
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lögð fram tillaga borgarstjóra til borgarráðs á fundi 29. febrúar 2024:
"Lagt er til að borgarráð samþykki að Grindavíkurbær verði heiðursgestur
menningarnætur í Reykjavík 2024 í tilefni af vinatengslum bæjarfélaganna og 50 ára
kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar í ár.
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar, hátíðin er alltaf haldin fyrsta
laugardag eftir 18. ágúst en þann dag 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi.
Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan
sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að
bjóða til veislu í miðborginni. Um árabil hefur tíðkast að bjóða völdum sveitarfélögum að
vera heiðursgestur á Menningarnótt og er sannur heiður að bjóða Grindavíkurbæ sem
heiðursgesti 2024."
Bæjarstjórn Grindavíkur þiggur boðið og þakkar borgarstjóra og borgarráði Reykjavíkur þann heiður sem Grindavíkurbæ er sýndur af þessu tilefni. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarstjóra að fylgja boðinu eftir við borgarráð Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg býður Grindavíkurbæ að vera heiðursgestur menningarnætur í Reykjavík 2024.