Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2402011

Bæjarráð Grindavíkur - 1695. fundur - undefined


Bæjarráð Grindavíkurbæjar óskar eftir því að innviðaráðherra gefi út auglýsingu með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um eftirfarandi frávik frá skilyrðum 1. mgr.14. gr. og 4. mgr. 17. gr. sömu laga:

Til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins, verði bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér eftirfarandi frávik frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins:
1. Að fundir bæjarstjórnar verði haldnir á öðrum stað en mælt er fyrir í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda verði haldnir fyrir utan sveitarfélagið.
2. Að nefndarmenn taki þátt í fundum sveitarfélagsins með rafrænum hætti þrátt fyrir að vera ekki staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess.

Þess er vinsamlega óskað að auglýsingin taki gildi sem fyrst og að hún gildi í allt að sex mánuði. Heimildi fellur þó úr gildi fyrr ef ríkislögreglustjóri aflýsir almannavarnastigi í sveitarfélaginu fyrir þann tíma.


Lögð fram til samþykktar auglýsing um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar.