Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2312074

Bæjarráð Grindavíkur - 1680. fundur - 4.8.2025 00:00:00


Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Launafulltrúi Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð samþykkir að akstursgreiðslur verði eftirfarandi daggjald:
Akstur 1: Suðurnes utan Grindavíkur, gjald 2.100
Akstur 2: Önnur svæði, gjald 3.300

Gildistaka er frá og með 16. apríl.


Áfangastaður er ekki lengur höfuðborgarsvæðið heldur Grindavík. Ákveða þarf ný viðmið í fjarlægð. Lagt er til að skurðpunktur frá akstri 1 í akstur 2 verði um 80 km. Enginn akstur verður greiddur ef styttra er en 20 km.

Á bæjarráðsfundi nr 1661 var eftirfarandi samþykkt:
Lögð fram tillaga frá sviðsstjórafundi varðandi akstursstyrk til starfsmanna sem þurfa að sækja vinnu um lengri veg. Bæjarráð samþykktir að greiða aksturstyrk til starfsmanna sem koma til vinnu utan höfuðborgarsvæðis. Gert ráð fyrir að það verði 2 gjaldflokkar eftir fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Stuðullinn 1,5 ef fjarlægð er meira en Árborg og Borgarnes. Grunnfjárhæð verður 3.289 pr. dag miðað við gjaldflokk 1.