Málsnúmer 2312003
Bæjarstjórn Grindavíkur - 562. fundur - 4.4.2024 00:00:00
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir samhljóða að heimila ekki endurbyggingu og viðgerðir á
húseignum í þéttbýli Grindavíkur þar sem tjón á húseign er þess eðlis að sækja þarf um
byggingarleyfi.
Ákvörðun bæjarstjórnar er gerð með vísun til 1. mgr. 15. gr. laga nr. 55/1992 um
Náttúruhamfaratryggingu Íslands í þeim tilgangi að fasteignaeigendur í Grindavík fái eins
skjóta úrlausn sinna mála og kostur er hjá NTÍ. Þar sem afstaða bæjarstjórnar byggir á
skipulagsástæðum eða öðrum aðstæðum sem tjónþoli ræður ekki við skal ekki beita
frádráttarreglu 2. málsliðar 2. mgr. 15. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Bæjarstjórn áréttar að á meðan óvissa ríkir um framhald náttúruhamfara í og við Grindavík eru
ekki forsendur til þess að gefa út byggingarleyfi fyrir endurbyggingu og viðgerðum á húsum
sem hafa orðið fyrir tjóni.. Grindavíkurbær mun þó í undantekningartilvikum leitast við að
bregðast við rökstuddum óskum frá fasteignaeigendum um byggingarleyfi þrátt fyrir
framangreinda tímabundnu afstöðu.
Afstaða bæjarstjórnar vegna þessa verður endurmetin þegar ástæða verður til m.t.t. þeirra
náttúruhamfara sem eru í gangi.
Tillaga að almennri bókun vegna tjónamála lögð fram ásamt greinagerð.