Málsnúmer 2311047
Bæjarstjórn Grindavíkur - 548. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir bæjarráð Grindavíkur að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og mun tekjuskattur lækka samsvarandi. Útsvar verður 14,97% á árinu 2024.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breyting á útsvarshlutfalli.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tilllögu bæjarráðs.
Breyting á útsvarshlutfalli vegna málefna fatlaðra í 14,97%
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir bæjarráð Grindavíkur að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.
Bæjarráð vísar þessu til staðfestingar í bæjarstjórn.