Málsnúmer 2311045
Bæjarstjórn Grindavíkur - 547. fundur - undefined
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs,
Fullnaðarafgreiðsla mála á grundvelli reglna um fjárhagsaðstoð hjá félagsþjónustu Grindavíkur
a. Með vísan til 7. tl. 2. mgr. auglýsingar nr. 1217/2023 um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins veitir bæjarstjórn sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og yfirfélagsráðgjafa sveitarfélagsins heimild til að taka allar ákvarðanir á grundvelli IV. kafla reglna um fjárhagsaðstoð hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins sem fjalla um heimildir til fjárhagsaðstoðar vegna sérstakra aðstæðna.
a. Samhliða er óskað eftir breytingum á eftirgreindum ákvæðum reglna um fjárhagsaðstoð hjá félagsþjónustu Grindavíkur:
10. gr. ? Upphæð fjárhagsaðstoðar
Grunnfjárhæð verður kr. 176.500,-
16. gr. ? Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna barna á þeirra framfæri
Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru kr. 30.000,- á mánuði.
24. gr. ? Lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu
... lán eða styrk allt að kr. 450.000,- til fyrirframgreiðslu húsaleigu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bæði erindin.
Óskað eftir heimild til fullnaðraafgreiðslu umsókna um fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélaginu. Samhliða óskað eftir breytingum á tilteknum ákvæðum reglnanna.