Málsnúmer 2311007
Skipulagsnefnd - 128. fundur - 11.6.2023 00:00:00
Matorka óskar eftir leyfi til að stækka lóð iðnaðarsvæðis i5 við Nesveg um 70 metra til norðurs. Ástæða stækkunar er til að draga eins mikið og hægt er úr smithættu í fiskeldinu.
Núverandi staðsetning seiðaeldis á Húsatóftum er nánast á sjávarkambinum, mikið hagsmunamál er fyrir Matorku að færa þennan hluta eldisins fjær sjónum og upp fyrir núverandi áframeldi.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að vinna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við framlagða umsókn skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tilbúin gögn skulu lögð fram til skipulagsnefndar. Lagt verður mat á það hvort málsmeðferð deiliskipulagbreytingarinnar verði m.v. verulega eða óverulega breytingu deiliskipulagsins þegar fullbúinn skipulagsgögn berast skipulagsnefnd.
Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er sú afgreiðsla sem snýr að heimild til skipulagsbreytingar, fullnaðarafgreiðsla.
Umsókn um breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis (i5) frá Matorku lögð fram.