Málsnúmer 2311006
Skipulagsnefnd - 128. fundur - 11.6.2023 00:00:00
Umsókn um breytingu deiliskipulags Eyjabakka vegna Bakkalágar 17 frá Marine Collagen lögð fram. Umsækjandi óskar eftir því að Bakkalág 17, Hólmasund 1 og partur af Bakkalág 15 verði sameinaðar í eina lóð. Stakkavík hefur samþykkt að Marine Collagen fái hluta af þeirra lóð, Bakkalág 15, sjá fylgiskjal umsóknar. Umsækjandi veit af minjum sem skráðar eru norðan við Bakkalág 17 og hefur óskað umsagnar Minjastofnunar vegna þess.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að vinna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við framlagða umsókn skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tilbúin gögn skulu lögð fram til skipulagsnefndar. Að mati skipulagsnefndar er um óverulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins sé að ræða þannig að málsmeðferð verður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er sú afgreiðsla sem snýr að heimild til skipulagsbreytingar, fullnaðarafgreiðsla.
Umsókn um breytingu deiliskipulags Eyjabakka vegna Bakkalág 17 frá Marine Collagen lögð fram.