Málsnúmer 2309070
Skipulagsnefnd - 125. fundur - undefined
Fyrirspurn vegna gistiheimilis í Vík tekin til umfjöllunar. Neðri hæð skiptist í tvær íbúðir með svefnplás átta manns þrjú svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Bílastæði fyrir 4 bíla verða fyrir framan.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar fyrir íbúðarbyggð segir meðal annars eftirfarandi:
"Umsóknir um nýja gististaði í flokki II, tegund c innan íbúðarbyggðar skal
skipulagsnefnd sérstaklega fjalla um og skal leyfi til reksturs vera háð ákvörðun nefndarinnar. Við mat á umsókn skal skipulagsnefnd líta til þess að kröfur um bílastæði séu uppfylltar, horfa skal til staðsetningar innan íbúðarbyggðar og aðkomu. Umsóknir sem þessar skulu ávallt grenndarkynntar fyrir nágrönnum ....."
Skipulagsnefnd leggur það til við umsækjanda að hann sæki um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar á húsnæðinu við Vík. Erindinu skulu fylgja teiknignar sem sýna breytingar innan hús og skipulag lóðar.
Spurt er fyrir um gistiheimili á Vík. Neðri hæð skiptist í tvær íbúðir með svefnplás 8 mans 3 svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Bílastæði er fyrir 4 bíla er fyrir framan