Málsnúmer 2309030
Skipulagsnefnd - 125. fundur - undefined
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Víkurbraut 66 og 68. Áætlað er að sameina lóðirnar svo verði úr Víkurbraut 66. Þá biður umsækjandi um heimild fyrir íbúðarbyggingar á tveimur hæðum með aðkomu frá Suðurhópi. Áætlað er að íbúðir verði um 40 stk., 50-80m2 að stærð með inngarð á milli íbúða og sérgeymsla.
Skipulagsnefnd samþykkir að málsmeðferð á deiliskipulagsbreytingunni verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðahöfum við Stamphólsveg 3 og 5 ásamt því að kynna hana fyrir bæjarráði.
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkurbraut 66 og 68.