Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2308206

Bæjarstjórn Grindavíkur - 542. fundur - undefined


Til máls tók: Ásrún.

Þónokkuð hefur borið á kvörtunum íbúa í kjölfar breytinga í 4 flokka kerfi. Nýjar tunnur voru afhentar um mánaðarmótin maí, júní og hefur tíðni sorphirðu verið óljós.

Bókun
Það er mjög hvimleitt að biðla til fólks að taka upp nýtt verklag og innleiða breytingar þegar innviðir eða skipulag er ekki reiðubúið.

Við höfum skilning á því að eitthvað aðlögunarferli þurfi sem hafi áhrif á sorphirðuna og skipulagið, en það er ákjósanlegra að íbúar hafi hugmynd varðandi áætlun sorphirðunnar.

Best væri að áætlunin myndi birtast á heimasíðunni sem fyrst, þó hún þyrfti að taka breytingum sem væri hægt að kynna fyrir íbúum jafnóðum.

Við óskum eftir því að Kalka birti aðgengilega sorphirðuáætlun sem allra fyrst ásamt því að upplýsa ef sorphirða breytist.
Bæjarstjórn Grindavíkur


Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur óskar eftir að setja málefni sorphirðu bæjarins á dagskrá.

Þónokkuð hefur borið á kvörtunum íbúa í kjölfar breytinga í 4 flokka kerfi. Nýjar tunnur voru afhentar um mánaðarmótin maí, júní og hefur tíðni sorphirðu verið óljós.