Málsnúmer 2306061
Skipulagsnefnd - 127. fundur - undefined
Grenndarkynningartíma vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Borgarhraun 1 er lokið. Athugasemdir bárust á kynningartímanum. Í athugasemdum er meðal annars bent á að verið sé að breyta einbýlishúsi í fjölbýli.
Í 31. tl. 1.2.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 er skilgreining á því hvað sé fjölbýlishús þ.e. hvert það hús sem í eru tvær eða fleiri íbúðir sem hafa sameiginleg rými. Ljóst er af þeim teikningum sem fylgja umsókninni að óskað er eftir því að skipta mannvirkinu upp í að minnsta kosti 2 íbúðir. Í gildandi aðalskipulagi er tiltekið hvaða hverfi séu fullbyggð í sveitarfélaginu og aðeins tiltekin nokkur svæði þar sem heimilt er að þétta byggð. Borgarhraun 1 er staðsett innan ÍB3. Það hverfi er fullbyggt hverfi samkvæmt aðalskipulagi og ekki er því heimilt að þétta byggð innan Borgarhrauns.
Einnig eru gerðar athugasemdir við bílastæðin á lóðinni og þann fjölda bíla og aukinnar umferðar sem fylgir fjölgun íbúða á lóðinni. Skipulagsnefnd tekur undir þær athugasemdir sem bárust.
Með vísan til þessa hafnar skipulagsnefnd umsókninni.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn vegna Borgarhrauns 1 er lokið. 4 athugasemdir bárust á grenndarkynningartímanum.