Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2306057

Skipulagsnefnd - 123. fundur - undefined


Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Túngötu 7 er lokið án athugasemda þá liggur fyrir umsögn Minjastofnunar Íslands sem gerði ekki athugasemd.

Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.


Jörgenzen ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir Túngötu 7. Efri hæð hússins sem byggð er úr timbri er ónýt, því þarf að rífa hæðina og reisa að nýju. Hús veður reist í sömu mynd og það er nú þegar.

Samkvæmt fasteignaskrá þá er húsið er byggt árið 1927 og samkvæmt 1. mgr. 30. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar er þá skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands. Umsögn Minjastofnunar þarf að liggja fyrir áður en skipulagsnefnd tekur erindið fyrir eftir að grenndarkynningu lýkur. Umsögn Minjastofunnar liggur fyrir og grenndarkynningu lauk án athugasemda.