Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2306055

Skipulagsnefnd - 122. fundur - undefined


Jóhann Þór Ólafsson sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á hesthúsi við Hópsheiði 12. Eftir stækkun verður hesthúsið 110 m2 sem er í samræmi við skipulag.

Í gildandi deiliskipulagi er m.a. kveðið á um að húsin í hesthúsahverfinu megi vera 5,5 m að hæð, séu með mænisþak og heimild sé um að hafa kvist til að koma fyrir kaffistofu á millilofti. Þá skal vegghæð ekki vera hærri en 3,2 m.

Umsækjandi óskar eftir því að vikið verði frá kröfum um 3,2 m vegghæð. Húsið er ekki með mænisþaki eins og deiliskipulagið gerir ráð fyrir og ekki hægt að koma fyrir kvisti miðlægt í húsinu eins og skilmálar skipulagsins gera ráð fyrir.

Það er mat nefndarinnar að umfang hesthússins eftir stækkun verði ekki meiri en heimildir deiliskipulags segja til um og því telur nefndin að stækkun á húsinu sé með þeim hætti að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Nefndin samþykkir að vikið sé frá kröfum um 3.2 metra vegghæð vegna umsóknar þessara, enda er vegghæðin í dag hærri en kröfur deiliskipulagssins segja til um.

Samþykkt á byggingaráformunum byggir því á 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.

Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.


Jóhann Þór Ólafsson sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á hesthúsi við Hópsheiði 12. Umsóknin fer aðeins út fyrir skilmála deiliskipulags á svæðinu sem orsakast m.a. að því að í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að hús séu með mænisþaki en það hefur aldrei verið raunin á þessu raðhúsi.