Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2306036

Bæjarráð Grindavíkur - 1647. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Borið hefur á því að óútskýrt næturrennsli vatnsveitu Grindavíkur hafi aukist á síðustu misserum. Ráðast þarf í umfangsmikla lekaleit til að ráða bót á þessum málum.

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 11.760.000 kr. vegna neðangreindra lykla vatnsveitunnar:

Lykill 2853. Hækkun um 1.200.000 kr.
Lykill 2062. Hækkun um 60.000 kr.
Lykill 4344. Hækkun um 500.000 kr.
Lykill 4976. Hækkun um 10.000.000 kr.

Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 11.760.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.


Sótt er um viðauka við fjárhagsáætlun veitna Grindavíkur vegna átaks um að stöðva leka í kerfinu.