Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2306007

Bæjarráð Grindavíkur - 1648. fundur - undefined


Tillaga að breytingu á deiliskipulags í kringum Bláa Lónið í Svartsengi lögð fram.

Í Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 er gert ráð fyrir reit fyrir verslun og þjónustustofnanir á landsvæði því sem deiliskipulagið nær til. Deiliskipulagið tekur mið af gildandi aðalskipulagi.

Eftirfarandi breytingar eru lagðar til í skipulagstillögunni á skilmálum gildandi deiliskipulags fyrir svæðið.

- Lóðir við Norðurljósaveg 9 og 11 eru sameinaðar í eina lóð Norðurljósaveg 9. Samanlagt byggingarmagn á lóðunum tveimur er óbreytt frá gildandi skipulagi, 19.700 m2.
- Lóð undir þjónustuhús, Norðurljósavegur 9a, við aðkomu að Heilsulind Bláa Lónsins, er stækkuð ásamt því að byggingarreitur fyrir þjónustuhús á lóðinni er stækkaður.
- Lóð við Norðurljósaveg 7 stækkar ásamt því að byggingareitur er stækkaður. Bílastæði breytast og aðkomuvegir færast lítilega til.
- Aðkoma sunnan við Retreat Hótel við Norðurljósaveg 9 er tekin út

Skipulagsnefnd telur að allar megin forsendur deiliskipulagsins liggi fyrir í aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 og því ekki þörf á málsmeðferð skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd vill þó beina því til umsækjanda að í kjölfar deiliskipulagsbreytingar þessara verði mótuð skýrari stefna um svæðið m.t.t. fjölda gistirýma, byggingarmagns o.s.frv.

Skipulagsnefnd samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa skipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á fundi nefndarinnar nr. 122 þann 19. júlí 2023.

Bæjarráð samþykkir bókun skipulagsnefndar.



Tillaga að breytingu á deiliskipulags í kringum Bláa Lónið í Svartsengi lögð fram.

Skipulagsnefnd vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar á fundi nr. 122 þann 19. júní 2023.