Málsnúmer 2306006
Skipulagsnefnd - 123. fundur - undefined
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Heiðarhraun 3 er lokið án athugasemda.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
KE64 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á norðurhluta bílskúrs, ásamt viðgerð á núverandi skúr. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir lóðarhöfum við Heiðarhraun 1 og 5. Engar athugasemdir komu við grenndarkynningu.