Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2305070

Skipulagsnefnd - 123. fundur - undefined


Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Ásabraut 5 er lokið án athugasemda.

Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.


Magnús Kristján Guðjónsson sækir um byggingarleyfi vegna Ásabrautar 5. Ætlunin er að stækka eldhús og stofu til suðurs svo hægt sé að koma fyrir borðkrók við eldhúsið og að stækkun stofu nýtist sem sólstofa. Stækkun á eldhúsi yrði um 15 m² og stækkun á stofu um 20 m². Samtals er því um að ræða um 35 m² stækkun hússins. Lagt er upp með að viðbyggingarnar verði úr timbri/gleri, á steyptar plötur sem fyrir eru.

Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að grenndarkynna umsóknina fyrir lóðarhöfum við Ásabraut 3 og 7. Engar athugasemdir komu við grenndarkynninguna.