Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2305058

Bæjarstjórn Grindavíkur - 541. fundur - undefined


Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram beiðni um viðauka á fjárhagsáætlun sambýlis á Túngötu vegna ársins 2023. Viðaukinn snýr að tveimur þáttum. Annars vegar framlengingar á 50% stöðugildi frá 1. júlí til ársloka að fjárhæð 2.434.000 kr. Hins vegar er óskað eftir heimild til að breyta starfslýsingum starfsfólks til samræmis við aukið álag og auknar starfsskyldur en það leiðir af sér launaflokkahækkun. Bæjarráð samþykkir nýjar starfslýsingar sem halda gildi sínu á meðan þetta álagstímabil stendur yfir. Dagsetning nýrra starfslýsinga verði 1. maí 2023. Kostnaðarauki vegna þessa er 3.047.000 á árinu 2023.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 5.481.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.


Lögð fram beiðni um viðauka á fjárhagsáætlun sambýlis á Túngötu vegna ársins 2023. Viðaukinn snýr að tveimur þáttum. Annars vegar framlengingar á 50% stöðugildi frá 1. júlí til ársloka að fjárhæð 2.434.000 kr. Hins vegar er óskað eftir heimild til að breyta starfslýsingum starfsfólks til samræmis við aukið álag og auknar starfsskyldur en það leiðir af sér launaflokkahækkun. Bæjarráð samþykkir nýjar starfslýsingar sem halda gildi sínu á meðan þetta álagstímabil stendur yfir. Dagsetning nýrra starfslýsinga verði 1. maí 2023. Kostnaðarauki vegna þessa er 3.047.000 á árinu 2023.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 5.481.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.