Málsnúmer 2304077
50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 1. fundur - undefined
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til kynningar. Samkvæmt erindisbréfinu er hlutverk nefndarinnar eftirfarandi:
* Undirbúa hátíðarhöld í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
* Óska eftir og vinna úr hugmyndum frá íbúum og stofnunum að viðburðum og öðru því sem sveitarfélagið getur framkvæmt til að minnast tímamótanna.
* Láta taka saman og gefa út eða birta upplýsingar um sögu Grindavíkurbæjar með sérstaka áherslu á aðdraganda þess að Grindavíkurbær fékk kaupstaðarréttindi 10. apríl 1974 .
* Láta vinna vefsíðu sem vera skal kynningar- og fræðsluvettvangur fyrir afmælisárið.
* Láta hanna afmælismerki sem fanga skal anda kaupstaðarafmælisins.
* Hvetja íbúa til að beina sjónum sínum að viðburðum á afmælisárinu.
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til kynningar og umræðu.