Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2303084

Bæjarráð Grindavíkur - 1640. fundur - 4.4.2023 00:00:00


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Húsfélagið við Víkurbraut 62 hefur undirritað verksamning við Grindina ehf. vegna þaks á byggingunni. Tekin var til umræðu framtíðarnotkun á 3. hæð byggingarinnar sem er rými í eigu Grindavíkurbæjar.

Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.


Húsfélagið við Víkurbraut 62 hefur undirritað verksamning við Grindina ehf. vegna þaks á byggingunni. Taka þarf til umræðu framtíðarnotkun á 3. hæð byggingarinnar sem er rými í eigu sveitarfélagsins. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni í framkvæmdir innanhúss á 3. hæð á árinu 2023.

Gögn sem fylgja málinu er þau sem lögð voru til grundavallar fyrirhuguðum framkvæmdum á árinu 2020, þegar bæta átti hljóðvist og starfsaðstæður á hæðinni fyrir félagsþjónustu og fræðslusvið.