Málsnúmer 2303082
Bæjarráð Grindavíkur - 1640. fundur - 4.4.2023 00:00:00
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Laufás ehf. var lagt fyrir skipulagsnefnd þann 7. nóvember 2022 varðandi breytingar á reglum um hvenær lóðarleigusamningar eru gerðir vegna módúlbygginga.
Bæjarráð tekur vel í framangreindar breytingar og felur sviðsstjóra að útfæra þær nánar og leggja síðan tillögur að breytingum fyrir bæjarráðsfund.
Erindi frá Laufás ehf. var lagt fyrir skipulagsnefnd þann 7. nóvember 2022 varðandi breytingar á reglum um hvenær lóðarleigusamningar eru gerðir vegna módúlbygginga. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu.
Fulltrúi Laufás hefur óskað eftir því að fá að bera erindið fyrir bæjarráð til að ræða erindið. Til upplýsinga þá hefur Ölfus samþykkt sambærilegar breytingar og hér um ræðir.