Málsnúmer 2303046
Skipulagsnefnd - 117. fundur - undefined
Stefán Þór Kristjánsson sækir um byggingarleyfi við Einland í Þórkötlustaðahverfi. Sótt er um að byggja íbúðarhús með bílageymslu, gróðurhús með gæludýrarými, gufubað, gripahús og vélargeymslu. Erindinu fylgja umsókn um byggingarleyfi og aðaluppdrættir dagsettir 16. mars 2023.
Í umsókninni kemur fram að við hönnun húsins hefur verið leitast við að nota byggingarefni sem falla sem best að umhverfinu (steypu, steinhleðslur, torf og viðarklæðningar). Húsin eru lágreist og fara vel í landinu. Einnig hefur verið reynt að staðsetja byggingar þannig að þær raski ekki gömlum steinhleðslum sem eru órjúfanlegur hluti af karakter svæðisins.
Í skilmálum verndaráætlunar Þórkötlustaðarhverfis segir m.a. að áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort veita skuli leyfi til framkvæmda skal leita álits Minjastofnunar. Byggingaráform verða síðan grenndarkynnt hagsmunaaðilum og þeim gefin tækifæri til að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Hagsmunaaðilar teljast vera lóðarhafar innan Þórkötlustaða.
Skipulagsnefnd samþykkir að skipulagsfulltrúi leiti álits Minjastofnunnar á byggingarleyfisumsókninni ásamt því að umsóknin verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum í innan Þórkötlustaðahverfis.
Stefán Þór Kristjánsson sæækir um byggingarleyfi við Einland í Þórkötlustaðahverfi. Sótt er um að byggja íbúðarhús með bílageymslu, gróðurhús með gæludýrarými, gufubað, gripahús og vélargeymslu.
Fara þarf með byggingarleyfisumsóknina í samræmi við gildandi verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðarhverfi.
Erindinu fylgja umsókn um byggingarleyfi og aðaluppdrættir dagsettir 16. mars 2023.