Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2302079

Skipulagsnefnd - 121. fundur - 6.5.2023 00:00:00


Sigurbjörg Gunnarsdóttir sótti um byggingarleyfi vegna Borgarhrauns 1 og var erindið tekið fyrir fyrst á fundi skipulagsnefndar þann 23. mars 2023. Umsóknin var grenndarkynnt á tímabilinu 21. mars 2023 til og með 20. apríl 2023. Á grenndarkynningartímanum kom ein athugasemd. Á fundið skipulagsnefndar þann 3. maí 2023 var byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa falið að skoða málið betur m.a. með hliðsjón af því hvaða notkun er í húsinu.

Í ljós hefur komið að þær teikningar sem fylgdu byggingarleyfisumsókninni eru ekki réttar m.v. núverandi skipulag byggingar og notkun hennar. Því er byggingarleyfisumsókninni hafnað og leggur skipulagsnefnd það til við umsækjanda að hann sæki um byggingarleyfi á nýjan leik með réttum teikningum og að í umsókninni komi fram m.a. hver notkun hússins verður og hvernig leysa á bílastæðamál innan lóðar.


Skipulagsnefnd fól byggingar- og skipulagsfulltrúa að ganga úr skugga um hvort Borgarhraun 1 væri í raun einbýli eða fjölbýli. Farið verður yfir niðurstöðu þeirrar vinnu.