Málsnúmer 2302071
Skipulagsnefnd - 118. fundur - 4.3.2023 00:00:00
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Hafnargötu 26. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir Hafnargötu 26 er lokið án athugasemda.