Málsnúmer 2302027
Skipulagsnefnd - 118. fundur - 4.3.2023 00:00:00
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Kirkjustíg 3. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Grenndarkynningu vegna breytingar á deiliskipulagi við Kirkjustíg 3 er lokið án athugasemda.