Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2302017

Skipulagsnefnd - 114. fundur - 2.6.2023 00:00:00


Eldvörp ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fyrri áfanga að endurbótum baðaðstöðu Bláa Lónsins. Í fyrsta áfanga eru ný gufu- og eimböð á útivistarsvæðinu, ásamt tveimur misháum fossum. Í seinni áfanga, sem sótt verður um byggingarleyfi fyrir síðar, er um að ræða stækkun og endurbætur baðálmu við Bláa Lónið.

Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.

Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.


Eldvörp ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fyrri áfanga að endurbótum baðaðstöðu Bláa Lónsins. Í fyrsta áfanga eru ný gufu- og eimböð á útivistarsvæðinu, ásamt tveimur misháum fossum. Í seinni áfanga, sem sótt verður um byggingarleyfi fyrir síðar, er um að ræða stækkun og endurbætur baðálmu við BL.