Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2301120

Bæjarráð Grindavíkur - 1634. fundur - 2.7.2023 00:00:00


Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram bókun af fundi frístunda- og menningarnefndar nr. 123, dags. 1.2.2023.

Bókun
Fulltrúi M-lista leggur til að það verði farið í það strax að skipta út gervigrasinu í Hópinu.

Fundarhlé tekið kl. 17:45 - 18:00

Bókun
Meirihluti B, D og U tekur undir bókun frístunda- og menningarnefndar að skoða þann möguleika að skipta gervigrasinu í Hópinu út fyrr en áætlað var. Viðgerð er hafin á gervigrasinu í samræmi við úttekt fagaðila en bregðast þurfti strax við skemmdum eins og áætlað var í fjárhagsáætlun. Að viðgerð lokinni, ef mat á ástandi gervigrassins er verra en áætlað var, verður aðilum falið að undirbúa útboð og kanna afhendingartíma á nýju gervigrasi. Ákvörðun verður tekin um framhaldið í vinnu við fjárhagsáætlun í haust.


Bókun 123. fundar frístunda- og menningarnefndar lögð fram.